Hvernig nota á samfélagsmiðla rétt
Komast þarf upp úr þeim hjólförum að nota samfélagsmiðlana eins og aukaafurð við hefðbundna kynningu og miðlun. Samfélagsmiðlarnir eru staðirnir – þar er fólkið, þar eru tækifærin.
Ávinningur þátttakenda
- Kynnast nýjum möguleikum í markaðssetningu í gegnum samfélagsmiðla.
- Kynnast eiginleikum og tækifærum helstu miðla.
- Farið yfir dæmi um notkun á samfélagsmiðlum sem eru til fyrirmyndar.
- Læra að setja upp herferðir og lesa úr árangri þeirra þannig að fjármunir nýtist sem best.
- Kynnast því hvernig betra efni er framleitt fyrir samfélagsmiðla.
- Læra að nýta sérhæfða en gríðarlega öfluga möguleika samfélagsmiðla í öllu markaðsstarfi.
- Og margt fleira …
Ekki missa af Lestinni
„Það sem ég er að ýja að er að þessi kerfi eru kannski farin að þekkja okkur betur en við þekkjum okkur sjálf.“
Hlustaðu á viðtal í Lestinni á RÚV við Margeir, sérfræðing Hugsmiðjunnar, um gagnaöflun samfélagsmiðla og friðhelgi einkalífsins og það hvernig fyrirtæki um allan heim eru farin að nýta sér þessi gögn til að selja fólki vörur og þjónustu.
Auglýsingakerfi Facebook
Meðal þess fjölmarga sem tekið er fyrir er hið umdeilda en gríðaröfluga auglýsingakerfi Facebook og Instagram og sýnt er hvernig við getum nýtt það okkur í hag. Þá er farið ítarlega í tölfræðina en rétt beiting hennar er lykilatriði til að sjá hvað virkar og hvað virkar ekki.
Tveggja daga námskeið,
þrjár klst. í senn.
Verð:
49.900,- kr.* Ath. að mörg stéttarfélög veita styrk fyrir 90% af námskeiðsgjaldi.
Dagsetningar:
Ekkert námskeið á dagskrá
Staður:
Hugsmiðjan, Snorrabraut 56
Umsagnir þátttakenda
TAKK! Þessi fyrirlestur var alveg frábær. Ég sat a.mk. límd í stólnum, nýjar víddir að opnast.
Frábærlega fræðandi námskeið. Það opnuðust fyrir mér nýir heimar í skilvirkari notkun samfélagsmiðla.
30% söluaukning á milli ára, með minni birtingakostnaði! Get hiklaust mælt með þessu námskeiði og sé mest eftir því að hafa ekki farið miklu fyrr.
Mér fannst sérstaklega gagnlegt að fara yfir það hvernig maður á að setja efnið sitt fram á samfélagsmiðlum og hvernig sú framsetning er ólík öðrum miðlum eða auglýsingaefni.
Námskeiðið var mjög gott og verulega praktískt.
Margeir var búinn að kynna sér hvern þátttakanda nokkuð vel og gat gefið sérsniðin ráð.
Hagnýting gagna
Kynntu þér undirstöðuatriði gagnavísinda (Data Science) og lærðu að búa til verðmæti úr gögnum með sömu aðferðum og tæknirisarnir nota.
Hvað er gerlegt með gagnavísindum? Hvað er ógerlegt? Hver eru fyrstu skrefin sem starfsemin þín getur tekið til að nýta gögn?
Þetta námskeið hjálpar þér að „tala tungumál“ gagnavísinda þannig að þú getir tekið þátt í að móta stefnu fyrirtækisins hvað varðar gögn og gervigreind.
Samfélagsmiðlun sem virkar
Náðu forskoti með mikilli útbreiðslu og lægri kostnaði en með hefðbundinni markaðssetningu.
Hvernig nota á samfélagsmiðla rétt
Komast þarf upp úr þeim hjólförum að nota samfélagsmiðlana eins og aukaafurð við hefðbundna kynningu og miðlun. Samfélagsmiðlarnir eru staðirnir – þar er fólkið, þar eru tækifærin.
Sérsniðin vinnustofa í stafrænum miðlum
Lærðu að setja upp þínar eigin herferðir í auglýsingakerfum Facebook og Google.
Vinnustofan er ætluð fyrirtækjum og stofnunum sem vilja taka stafræna markaðssetningu föstum tökum undir handleiðslu sérfræðinga.
Google Ads - Kostuð leit og vefauglýsingar
Markvisst og mælanlegt markaðsstarf
Lærðu að nota Google Ads í þínu markaðsstarfi og nýttu peningana í markvissar og mælanlegar aðgerðir.
Skrifað fyrir fólk og leitarvélar
Mikilvægasti þáttur í leitarvélarbestun er gott efni
Þegar unnið er með efni fyrir vef er freistandi að „skrifa fyrir leitarvélar“ (og þeirra sérvisku). Gleymum því samt ekki að markmið leitarvélanna er að finna bestu niðurstöðurnar fyrir fólkið sem notar þær.