Erum við að leita af þér?
Hugsmiðjan er hönnunar- og hugbúnaðarhús sem hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að ná árangri með nýrri tækni.
Hjá Hugsmiðjunni er ákaflega metnaðarfullt en jafnframt notalegt og afslappað andrúmsloft. Við leggjum mikla áherslu á að vera fyrsta flokks vinnustaður sem laðar að sér framúrskarandi fólk sem hefur ástríðu fyrir að skapa yfirburða stafrænar lausnir með fagfólki og frábærum viðskiptavinum.
Starfið felur í sér:
-
Að skilgreina og móta stefnu í stafrænum verkefnum
-
Að beita notendamiðaðri nálgun á verkefni
-
Að vinna með gögn og greina stærri stafræn verkefni í upphafi
-
Notendarannsóknir og prófanir
-
Að hanna og stýra vinnustofum og vinna þvert á teymi
-
Taka saman niðurstöður greininga og miðla upplýsingum
Hæfniskröfur
-
Metnaður og ástríða fyrir stafrænni hönnun
-
Góð samskiptahæfni, útgeislun og hæfileiki til þess að hrífa fólk með sér
-
Greiningarhæfni og skapandi hugsun
-
Góður skilningur á notendaupplifun
-
Reynsla af stafrænum verkefnum
-
Þekking á hönnunar- og greiningartólum á borð við Figma, Miro o.fl.
-
Háskólamenntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
Við bjóðum
- Möguleika á Sex tíma vinnudegi
- Krefjandi og skapandi verkefni með metnaðarfullum viðskiptavinum
- Öflug teymi sem samanstanda af fagfólki
- Vinalegt starfsumhverfi og fjölskylduvæna starfsmannastefnu
- Möguleiki á fjarvinnu og sveigjanleika í viðveru
- Hádegismat í hús, gott kaffi, og fullan ísskáp
- Sundlaug í næsta húsi
Okkar leiðarljós
- Það er fátt mikilvægara en að vera sífellt að rækta samskiptahæfileikana sína. Góð samskipti drífur árangur áfram
- Við segjum það sem við hugsum því við vitum að öflug samskipti eru lykillinn að skilvirkri teymisvinnu. Vandamál eru til þess að leysa þau
- Við drögum forsendur og aðferðir í efa en aldrei viðleitni, ásetning eða metnað
- Við berum virðingu fyrir tíma okkar og annarra og við erum góð að vinna undir tímapressu, því tíminn er okkar verðmætasta eign
- Við erum vandvirk, en festumst ekki í smáatriðum
- Ef það er ómögulegt að mæta settri dagsetningu, þá segjum við frá því tímalega. Við bíðum ekki og vonum
- Árangursrík teymi hjálpast að og við göngum óhrædd í öll verkefni
- Ef við gerum mistök, þá tökum við ábyrgð á þeim, lögum þau og deilum þekkingunni
- Ef við sjáum að við höfum eitthvað fram á að færa til að hjálpa öðrum starfsmanni þá bjóðum við fram aðstoð okkar
- Okkur stendur ekki á sama
Hafðu samband
Heyrðu í okkur og sendu okkur sýnishorn af þínum verkum, ef þú telur þig vera réttu manneskjuna í starfið: starf@hugsmidjan.is