Vefur sem sýnir allt það besta sem Borgarleikhúsið hefur upp á að bjóða
Markmið okkar var að skapa vef sem leyfði Borgarleikhúsinu að sýna allt það besta sem það hefur upp á að bjóða. Glæsilegt myndefni er í forgrunni. Gestir ættu að fá innblástur, vera skemmt, læra eitthvað nýtt og auðvitað helst af öllu finna brennandi löngun til að skella sér í leikhúsið!
Ásýnd sem fangar tón Borgarleikhússins
Við sköpuðum ásýnd sem fangaði tón Borgarleikhússins fullkomlega og á eftir að lyfta leikhúsinu í enn hærri hæðir á komandi árum. Markmið vefsins er tvíþætt: Að efla sölu og miðla starfssemi hússins í víðu samhengi.
Leikhússtemningin skilar sér í snjalltækin
Á þessu ári voru 46% heimsókna frá snjallsímum — það er 17% aukning á milli ára. Það var gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að leikhússtemningin skilaði sér í snjalltæki þar sem nær helmingur gesta skoðar vefinn í símanum sínum.
Viltu skyggnast á bak við tjöldin?
Allt leikhúsið kom í myndatöku til okkar! Auk þess tókum við portrettmyndir fyrir Borgarleikhúsblaðið sem var gefið út á sama tíma og vefurinn opnaði.